Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Lít á það sem eitt meginhlutverk okkar að menn gangi í takt“

Sveinbjörn Eyjólfsson er formaður kjörstjórnar í Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Hann var einn viðmælenda í þættinum Víðsvegar á Rás 1 þar sem fjallað var um verkefni kjörstjórna á mismunandi tímum í ferlinu. Meginverkefni kjörstjórnar segir hann vera að allir gangi í takt.„Átökin eiga að vera á framboðsfundum og frambjóðenda á milli en gagnvart okkur þá erum við tilbúin að taka gagnrýni sem kemur á okkur og gera betur. Ég bið menn að halda ró sinni gagnvart okkur í kjörnefndinni,“ segir Sveinbjörn.„Við erum bara að reyna að vinna verk. Einhver verður að vinna þetta verk. Gerum það eins vel og við getum og erum ekki að leika okkur að því að gera þetta illa.“Hlusta má á viðtalið við Sveinbjörn í spilaranum hér fyrir ofan. Einnig má heyra viðtöl frá Dalabyggð og Akureyri.
„Lít á það sem eitt meginhlutverk okkar að menn gangi í takt“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta