Bókunarkerfi Herjólfs liggur enn niðri með tilheyrandi vandræðum. Framkvæmdastjóri Herjólfs bindur vonir við að truflanir á siglingum ferjunnar taki fljótlega enda.Á fimmtudag kviknaði í gagnaveri í Hollandi sem hýsir bókunarkerfi Herjólfs. Síðan þá hefur kerfið legið niðri og hafa starfsmenn þurft að færa allar bókanir inn handvirkt. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir það tímafrekt verkefni sem skerði starfsemina. Um þessar mundir sé einungis hægt að bóka fáar ferðir í einu.„Þetta setur mikið strik í reikninginn og er mjög alvarlegt mál. Við erum búin að vera í sambandi við okkar fólk úti í Finnlandi sem rekur fyrir okkur bókunarvélina og það er allt á fullu við það að koma þessu í gagnið aftur. Við vitum ekki nákvæmlega hvað gerist en vonandi verður það innan ekk