Evrópusambandið samþykkti í dag refsiaðgerðir gegn sjö rússneskum ríkisstofnunum og 16 einstaklingum fyrir að hafa rænt börnum frá Úkraínu. Fram kemur í yfirlýsingu sambandsins að síðan Rússland hóf allsherjarinnrás í Úkraínu sé áætlað að ríkið hafi flutt um 20.500 úkraínsk börn nauðug úr landi.Þá segir í yfirlýsingunni að þetta séu gróf brot á alþjóðalögum og á mannréttindum barnanna. Reynt sé að afmá sjálfsmynd barnanna sem Úkraínumanna.Í refsiaðgerðunum felst að eignir eru frystar og fyrirtækjum og einstaklingum aðildarríkja ESB er bannað að útvega þeim fjármuni. Þá mega einstaklingarnir sem refsiaðgerðirnar ná til ekki ferðast til landa ESB.Fundur var í dag í höfuðstöðvum ESB um það hvernig hægt verði að ná fleiri börnum til baka. Fulltrúar Úkraínu og Kanada voru einnig á fundinum.Óháð