Rúmur hálftími leið frá því fyrsta símtal barst Neyðarlínu vegna líkamsárásar í Hamraborg í Kópavogi og þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Fjórtán ára drengur hafði verið kýldur í andlitið og var að sögn sjónarvotts með skerta meðvitund. Neyðarlína og Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra segja upplýsingar um vettvang hafa verið óljósar og það hafi valdið óvenjulöngum viðbragðstíma.Neyðarlínu bárust fimm símtöl vegna atviksins 29. apríl síðastliðinn, fyrst klukkan 13:57, en sjúkrabíll kom á staðinn klukkan 14:29. Sjónarvottar hafa gagnrýnt langan viðbragðstíma og fréttastofa óskaði svara frá Neyðarlínu og Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni bárust fyrstu tvö símtöl frá manneskju sem ekki varð vitni að atvikinu heldur hafði heyrt af því og óskaði efti