Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir drepnir í skotárás í Nice

Tveir, hið minnsta, voru drepnir í skotárás í Nice í Frakklandi í dag. Þrír eru alvarlega særðir og þrír með minni háttar áverka. Árásin var gerð í hverfinu Moulins þar sem síðustu vikur hefur verið spenna milli glæpagengja. Árásarmaðurinn kom á staðinn á mótorhjóli og hóf skothríð. Síðar stökk hann upp í bíl og var ekið á brott. Lögregla hefur ekki náð honum. Lögregla fékk fyrstu tilkynningu um árásina klukkan 15:30 að staðartíma. Skólum í næsta nágrenni var strax lokað en þeir hafa verið opnaðir á ný. Um 8.000 manns búa í hverfinu. Mynd úr safni.EPA / EPA-EFE
Tveir drepnir í skotárás í Nice

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta