„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig persónulega. Það liggur mikil vinna og seigla á bak við svona ferðalag og í jafn harðri samkeppni og þessum bransa gefur svona viðurkenning manni sannarlega byr undir vængina til að halda áfram og treysta á eigin sýn og innsæi,“ segir arkitektinn Hulda Jónsdóttir, stofnandi og eigandi HJARK arkitekta. Hún verið valin í „Europe 40 Under 40“ sem eru virt verðlaun í heimi arkitekta og hönnuða.