Minnst tveir eru látnir og sex særðir eftir að maður hóf skothríð úr Kalashnikov-riffli í Nice í Frakklandi í dag. Árásin er talin tengjast uppgjöri í undirheimum borgarinnar og innflutningi fíkniefna en nokkrar skotárásir hafa verið gerðar í borginni á undanförnum dögum.