„Þetta sýnir kannski það hversu verðmætur stimpillinn á deiliskipulagi er því þá verða peningarnir til. Þegar þessi byggingaréttur er orðinn lögfestur, þegar verðmætin eru orðin til með samþykkt deiliskipulags, þá er hægt að fara og veðsetja þennan rétt og taka út á hann lán. Þarna er sveitarfélag að úthluta einkaaðilum alveg gríðarlegum verðmætum,“ segir Pétur Ármannsson arkitekt þegar hann er spurður um viðskipti með lóðina á Egilsgötu 5.Fjallað var um þessi viðskipti í sjónvarpsfréttum í gær. Þetta er ein af hinum svokölluðu bensínstöðvalóðum sem Reykjavíkurborg afhenti olíufélögunum N1, Skeljungi, Olís og Atlantsolíu árið 2021 á grundvelli samnings um að fækka bensínstöðvum í borginni. Talsvert hefur verið fjallað um þessi viðskipti með lóðirnar í fjölmiðlum í gegnum árin og sagði Morg