Gervigreindarmyndband sem birt var á TikTok-aðgangi oddvita Flokks fólksins í Reykjavík, Guðmundar Inga Þóroddssonar, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar mátti meðal annars sjá Guðmund veitast að Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland dansandi káta. Myndbandið hefur nú verið tekið niður og segir Guðmundur að um dómgreindarleysi sé að ræða.