Aukinn áhugi er á þjóðbúningum og aðsókn á námskeið í þjóðbúningasaum svo mikil að færri komast að en vilja. Margrét Skúladóttir, formaður Þjóðbúningafélags Íslands, segir vinsældirnar sérstaklega aukast hjá ungum konum.„Maður sér hvað það er mikið meira af ungum konum og þær eru meira að segja að fara í þessa stóru búninga sem tekur allt að þrjú ár að gera,“ segir Margrét.„Kannski er það vegna þess að það er að finnast alls konar gull og silfur heima og þá fara þær eitthvað að skoða þetta. Þetta er náttúrulega búið að vera svolítið sýnilegra núna heldur en þetta var þegar amma mín og mamma voru. Þá voru auðvitað bara allar konur í dönskum kjólum.“ KREFST MIKILLAR SÉRÞEKKINGAR KENNARA Mikil aðsókn er á námskeið í þjóðbúningasaum og einhverjir hafa þurft að skrá sig á biðlista. Námskeiði