Stjórnvöld í Ísrael eru sögð hafa beitt sér markvisst til þess að tryggja gott gengi landsins í Eurovison. Fjallað er um þetta og þátttöku Ísrael í Eurovision undanfarin ár í ítarlegri fréttaskýringu miðilsins New York Times sem birtist í dag. Það hafi verið gert með því að skipuleggja auglýsingaherferðir fyrir háar fjárhæðir sem ætlað var að auka atkvæðafjölda.Samkvæmt umfjöllun New York Times má rekja herferðir Ísrael allt aftur til ársins 2018. Það ár sigraði Ísrael keppnina með laginu Toy sem flutt var af söngkonunni Netta. Fullyrt er að það árið hafi stjórnvöld í Ísrael eytt um 12 milljónum króna í auglýsingar til stuðnings atriðinu.Talið er að yfirvöld í Ísrael hafi reynt með þessu að bæta orðspor landsins og auka við alþjóðlegan stuðning. Slíkt athæfi, að nýta menningarlega viðburði