Borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar hafa heimilað regluverði Reykjavíkurborgar að fá fullan aðgang að tölvusamskiptum sínum í tengslum við leka á ársreikningi Reykjavíkurborgar í lok apríl í tengslum við rannsókn á mögulegum markaðssvikum með leka á innherjaupplýsingum. Á fundi borgarráðs fyrir helgi kom fram að ársreikningur Reykjavíkurborgar er bundinn lögmæltri trúnaðar- og þagnarskyldu og teljast upplýsingarnar jafnframt til innherjaupplýsinga þar sem borgin er...