Átján farþegar hollenska skemmtiferðaskipsins Hondiusar hafa verið settir í einangrun í Bandaríkjunum. Allir eru með einkenni Hantaveirunnar og einn er með staðfest smit. Skipið kom að Tenerife í gær og farþegarnir voru fluttir í land. Eftir það var þeim flogið til heimalanda sinna. Bandaríkjamennirnir lentu í Omaha í Nebraska í morgun. 16 farþeganna eru í einangrun í Nebraska og tveir í Atlanta. Þrír farþegar á skemmtiferðaskipinu hafa látist vegna veirunnar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að fyrsti farþeginn hafi smitast í Argentínu áður en skipið lagði úr höfn þar í byrjun apríl. Þá telur stofnunin litlar líkur á útbreiðslu faraldurs. Einn farþega Hondiusar veifar til björgunarmanna. Myndin var tekin 10. maí 2026 úti fyrir Tenerife.AP / ASSOCIATED PRESS