Maður var í síðustu viku handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum og vörslu á talsverðu magni fíkniefna.Í dagbók lögreglu kom fram að athugasemd hefði verið gerð við rekstur snyrtistofu sem virtist ekki starfa samkvæmt lögum um slíkan rekstur og að það hefði verið afleiðing af handtöku mannsins.„Það kemur í ljós að hann var með snyrtistofu í heimahúsi sem var ekki með rekstrarleyfi. Við erum enn að skoða þetta,“ segir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi í Kópavogi, innt eftir þessu máli. Ráðist var í húsleit á heimili mannsins eftir handtökuna. Hann hefur síðan verið leystur úr haldi.Sigrún segir að næstu skref séu að taka skýrslu af eiganda snyrtistofunnar, sem er annar en sá sem var handtekinn. Þá verði haft samráð við viðeigandi stofnanir. Lögregla hefur til skoðunar hvort e