Lögreglan hefur til rannsóknar árás sex ungmenna á konu við biðskýli í Mjóddinni á fimmtudagskvöld. Þetta staðfestir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi í Kópavogi, við fréttastofu. Ungmennin eru á aldrinum 14-16 ára og þrjú þeirra eru undir sakhæfisaldri.Vísir greindi fyrst frá.Hin meinta árás fólst, að sögn Sigrúnar, í því að ráðist var að konunni með höggum og spörkum. Samkvæmt heimildum Vísis var áhald notað til að þrengja að öndunarvegi konunnar en Sigrún vill ekki staðfesta hvort það sé rétt. Þá vill hún heldur ekki tjá sig um undanfara árásarinnar.Lögregla hefur áður haft afskipti af hópnum. „Alls konar afskipti. Þau hafa komið við sögu lögreglu áður,“ segir Sigrún.Sigrún útskýrir að verið sé að taka skýrslur. Rætt verður við ungmennin ásamt barnavernd og foreldrum í framha