Stjórnvöld í Íran lýstu í dag yfir kröfum um að frystingu á eignum þeirra yrði aflétt og eins hafnbanni Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur alfarið hafnað skilyrðum Írana fyrir samningaviðræðum.Trump hefur ekki sagt hvað það var í tillögum Írana sem hann hafi ekki getað gengið að. Utanríkisráðuneyti Írans segist hafa krafist þess að Bandaríkin myndu fella niður hafnbann og hætta stríðsátökum í heimshlutanum og að í því felist einnig að Ísraelar hætti árásum á Líbanon. Þá krefjast Íranar þess að fá til baka eignir sínar sem hafa verið frystar í erlendum bönkum.Staðan hefur orðið til þess að olíuverð hefur hækkað enn frekar, enda litlar horfur á að opnað verði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á næstunni. AFP fréttaveitan hefur eftir framkvæmdastjóra sádiarabíska olíu