Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Atkvæði Reykvíkinga talin í Breiðholti af því að „Kóp boi“ verður í Laugardalshöll

Atkvæði Reykvíkinga í borgarstjórnarkosningunum um næstu helgi verða talin í íþróttahúsi ÍR við Skógarsel, en ekki í Laugardalshöll eins og í undanförnum kosningum.Ástæðan er sú að tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör var búinn að panta höllina sömu helgi undir stórtónleika sína.Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkur, segir að þau hafi vitað af stöðu mála í nokkurn tíma og strax farið að athuga hvaða möguleikar væru í boði. Engin vandræði hafi komið upp í tengslum við breytinguna.„ÍR-húsið er bara fínt hús og nóg pláss,“ segir Eva. „Það eina sem við vorum að skoða var aðkoma bíla með kjörkassana og það er ekkert vandamál.“ TVÆR BREYTINGAR Á KJÖRSTÖÐUM Í BREIÐHOLTI Einnig hafa verið gerðar tvær breytingar á kjörstöðum í Breiðholti. Í stað íþróttamiðstöðvarinnar í Austurb
Atkvæði Reykvíkinga talin í Breiðholti af því að „Kóp boi“ verður í Laugardalshöll

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta