Félagarnir Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj hafa vakið mikla athygli fyrir uppátæki sitt í síðustu viku þar sem þeir komu sófa fyrir á tveimur rafskútum frá Hopp og óku eftir Leirulæk í Laugardal. Þeir sáu myndband á Instagram þar sem nokkrir strákar höfðu gert slíkt hið sama. Þeir voru ekki lengi að ákveða sig, hoppuðu í Góða hirðinn, keyptu sófa á 4.500 krónur og „kýldu á þetta“.