Til skoðunar er að loka dagdvöl fyrir aldraða í Skagafirði í sumar, ásamt frekari þjónustu, þar sem ekki gengur að fá fólk í sumarafleysingar. Íbúar, sérstaklega eldra fólk, er ósátt við stöðuna. „Íbúar hafa auðvitað miklar áhyggjur. Þessi þjónusta er mjög mikilvæg í samfélaginu og skiptir mjög miklu máli í lífi fjölskyldna og kannski ekki síst í lífi þeirra sem að fá þjónustuna. Það eru þeir sem að verða fyrir skerðingu á lífsgæðum þegar þarf að skerða þjónustu,“ segir Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Skagafirði. SKERÐA EKKI LÖGBUNDNA ÞJÓNUSTU Þjónustan sem stendur til að skerða er meðal annars heimaþrif, dagdvöl fyrir aldraða og stuðningsþjónusta. Þetta er ekki lögbundin þjónusta en það er í algjörum forgangi hjá sveitarfélaginu að komast hjá því að skerða hana