Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blood Harmony senda frá sér Simple Pleasures

Blood Harmony er skipuð þremur systkinum frá Tjörn í Svarfaðardal. Nafnið vísar í þann einstaka samhljóm sem myndast þegar fjölskyldumeðlimir radda saman – tenging sem Örn lýsir sem nánast meðfæddri vegna líkra raddbanda og sameiginlegs uppvaxtar. Verkefnið varð til árið 2020 þegar systkinin fluttu norður í Svarfaðardal í kjölfar heimsfaraldursins. Þau settu upp stúdíó í kjallaranum á heimilinu Tjörn og nýttu tímann til að vinna loksins saman.Simple Pleasures kom út 11. maí en tónlistin er undir miklum áhrifum frá sænskri vísnahefð og bandarísku bluegrass og kántrí. Þau kalla þennan bláa, norræna tón nordicana, þar sem íslenski sannleikurinn og sögurnar mætast.Örn Eldjárn mætti í hljóðstofu til Atla Más og þeir ræddu sögu Blood Harmony og plötu vikunnar Simple Pleasures.
Blood Harmony senda frá sér Simple Pleasures

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta