Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving hefur unnið að tónlist undir nafninu Róshildur síðan 2021. Tónlistin er einlæg, rafdrifin og einkennist af hráum og persónulegum textum. Þann 5. maí gaf hún út fyrstu plötuna í fullri lengd, Samferða.Á plötunni fjallar hún um leiðirnar sem við deilum með fólkinu í kring um okkur, þeim sem við erum samferða í gegnum lífið. Titillag plötunnar er unnið með Iðunni Einars en þær voru með reglu um það að hvor þeirra mætti aðeins vinna í laginu í klukkustund áður en það yrði að senda það til baka á hina. „Þetta small eiginlega þegar við Iðunn kláruðum lagið Samferða þá sá ég bara svona skýran þráð og þegar ég fann þennan titil á lagi þá var ég bara já, þetta er auðvitað það sem platan heitir líka,“ segir hún.Samstarfið milli þeirra kom til þegar Iðunn heyrði