Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spenna á „ólympíuleikum myndlistarinnar“

Mótmæli hafa verið áberandi á Feneyjatvíæringnum í myndlist sem hófst um helgina. Þetta er í fyrsta skipti sem Rússland tekur þátt frá því að allsherjarinnrás í Úkraínu hófst árið 2022. Þá hafa margir gagnrýnt viðveru Ísraels á hátíðinni.„Það er augljóst að alls staðar þar sem þjóðir ætla að keppa þar er mikil spenna um þessar mundir og alþjóðastjórmálin lita það,“ segir Kristján Guðjónsson, útvarpsmaður á Rás 1, sem sótti hátíðina um helgina.Kristján segir að hátíðin sé stundum kölluð ólympíuleikar myndlistarinnar. Alla jafna er einn þjóðarskáli valinn bestur á hátíðinni. Verðlaunin verða þó ekki með hefðbundnum hætti að þessu sinni. Alþjóðleg dómnefnd sagði af sér vegna þess að hún vildi ekki taka til greina þjóðarskála ríkja þar sem þjóðarleiðtogar hafa verið sakaðir um glæpi gegn mannk
Spenna á „ólympíuleikum myndlistarinnar“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta