Ríkislögreglustjóri hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Samkvæmt ákæru réðst maðurinn á konu vopnaður 30 sentímetra löngum hnífi. Hann skar hana í andlitið og stakk hana í tvígang í brjóstbakið. Konan hlaut djúpan skurð á nefi og náði hann skáhallt yfir andlitið frá vinstri kinn rétt fyrir neðan auga undir nefbroddinn og inn á kinn hægra megin. Hún hlaut einnig 2,5 sentímetra og 3,5 sentímetra löng stungusár á aftanverða öxlina sem voru um þriggja sentímetra djúp.Húsnæði héraðssaksóknara.RÚV