Lögregla rannsakar hóp ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára sem talin eru hafa ráðist á konu konu á fimmtugsaldri með höggum og spörkum í biðskýli í Mjóddinni í Reykjavík á fimmtudag. Lögregla segir hópinn áður hafa komið við sögu hjá lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni.