Hart er sótt að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga Verkamannaflokksins, eftir arfaslakt gengi í sveitarstjórnarkosningum á dögunum. Í ávarpi í morgun kvaðst hann ætla að sanna sig fyrir efasemdarmönnum.Verkamannaflokkurinn galt afhroð í sveitarstjórnarkosningum fyrir helgi og Umbótaflokkurinn bætti verulega við sig. Farið er að hitna enn frekar undir Starmer í sæti leiðtoga. Jafnvel þingmenn flokksins kalla eftir afsögn hans. Ein þeirra er Paula Barker, sem sagði í morgunþætti breska ríkisútvarpsins í morgun að flokkurinn gæti komist hjá mikilli ringulreið færi Starmer frá. Hann væri fínasti náungi en afleitur stjórnmálamaður. REYNIR AÐ KNÝJA FRAM LEIÐTOGAKJÖR Í SEPTEMBER Catherine West, þingmaður Verkamannaflokksins, ætlar að safna undirskriftum þingmanna til að hvetj