Karl Gunnarsson heillaðist fyrst af veröldinni neðan sjávar þegar hann fór ungur að synda í sjónum og kafa. Þá opnaðist fyrir honum nýr heimur.„Það er nú oft talað um að fuglarnir fljúgi um loftið og maður sér þá, þannig að þeir verða áhugaverðir af því þeir koma oft fyrir augun á fólki. En þarna niðri var sem sagt fullt af svoleiðis lífverum, mismunandi dýrum og plöntum, og dýr af ýmsum flokkum og hópum.“„Þannig að það var svona fyrsta upplifunin sem gerði það að verkum að ég fékk áhuga á sjávarlífinu.“Hann segir áratugalangan feril sinn hafa verið eitt samfellt ævintýri.Rætt var við Karl Gunnarsson í þættinum Víðsvegar á Rás 1 - þar sem fjallað var um þörunganámskeiðið. Hlusta má á viðtalið við hann í heild sinni í spilaranum hér að ofan.