Fjórir karlmenn á fertugsaldri voru í dag dæmdir í 20 mánaða upp í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot. Samanlögð refsing nemur rúmlega ellefu árum bak við lás og slá.Árni Khanh Minh Dao var dæmdur til fjögurra ára og sex mánaða fangelsisvistar og Davíð Viet Quoc Davíðsson var dæmdur til þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsisrefsingar. Tveir fengu vægari dóma. Annar var dæmdur til 20 mánaða fangelsisvistar og eru sautján þeirra skilorðsbundnir. Hinn hlaut átján mánaða dóm og eru fimmtán þeirra bundnir skilorði.Þeir voru ákærðir fyrir að hafa útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift og selt fíkniefni í miklu magni. Þar á meðal voru tæp sextán kíló af marijúana, 213 grömm af amfetamíni og 119 grömm af hassi auk súkkulaðistyk