Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika.