Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hóf í morgun formlega tilraunir til myndunar ríkisstjórnar í Danmörku. Hann kallaði leiðtoga flokkanna til sín í morgunkaffi, einn í einu.Þingkosningar voru 24. mars og tilraunir Mette Frederiksen, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, til myndunar stjórnar báru ekki árangur. Friðrik Danakonungur hefur gefið Poulsen 14 daga frest til að mynda stjórn.Poulsen vildi ekkert gefa upp um það í morgun hvernig stjórn hann sæi fyrir sér. Hann kvaðst ætla að nálgast viðræðurnar af auðmýkt og kvaðst gera sér grein fyrir því að hann hefði ekki langan tíma til stefnu. Fyrsta mál á dagskrá viðræðnanna væru efnahagsmálin.Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre.EPA / Mads Claus Rasmussen