Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bréf í Alvotech hækka eftir lok úttektar

Hlutabréfaverð í Alvotech hækkaði um níu prósent í morgun. Þetta gerist eftir að Lyfja- og matvælaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík.Alvotech greindi í dag frá lokum úttektarinnar og áformum um að senda inn nýjar umsóknir um markaðsleyfi vegna hliðstæðulyfja fyrir lok annars ársfjórðungs. Í tilkynningu Alvotech sagði að hægt yrði að bregðast skjótt við athugasemdum þeirra sem unnu úttektina án veigamikilla breytinga eða viðbragða.Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík.Alvotech / Stefán Drengsson
Bréf í Alvotech hækka eftir lok úttektar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta