Frigus Invest, félag Lýðs Guðmundssonar sem kenndur hefur verið við Bakkavör, er komið í hóp stærstu eigenda Kviku banka. Bankinn flaggaði því í Kauphöllinni í morgun að félagið væri komið með yfir fimm prósenta hlut í bankanum.Friga Invest er í eigu Umbriel Ventures, sem skráð er á Kýpur. Það félag er í eigu svissneska sjóðsins L.G. Trust, Lýður er rétthafi þess sjóðs.Eignarhlutur Frigus er kominn í 5,08% eftir nýleg hlutafjárkaup. Það dygði félaginu til að verða sjöundi stærsti hluthafinn, samkvæmt hluthafalista frá því á föstudag. Fimm stærstu hluthafarnir eru lífeyrissjóðir og næst komu Stoðir. Þá var hlutur Frigus undir einu prósenti.Merki Kviku banka.RÚV