Flogið var með 94 farþega af skemmtiferðaskipinu Hondiusi frá Tenerife í gær. Skipinu varpaði akkerum nokkuð frá landi og farþegarnir voru fluttir í land á bátum. Þaðan fóru þeir í rútur og var flogið með þá á brott. Alls voru um 150 manns í skipinu, farþegar og áhöfn. Tvær flugferðir með farþega, til Ástralíu og Hollands, eru á dagskrá í dag.Spænskir farþegar voru fluttir til Madrídar í gær og varnarmálaráðuneytið birti myndband sem sýndi viðbúnaðinn. Sæti vélarinnar voru þakin plasti og gólfið líka. Þá mátti sjá stóra hitakassa í vélinni.Mikill viðbúnaður hefur verið á Tenerife þar sem skemmtiferðaskipið Hondius kom að landi í gær. Hitakassar voru í flugvél sem flutti spænska farþega skipsins til Madrídar og gólf og sæti voru þakin plasti.Tveir farþegar af skemmtiferðaskipinu hafa greins