Flugi Icelandair til Brussel frá Keflavíkurflugvelli seinkaði um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn vélarinnar. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir þetta og segir hluti áhafnar hafi forfallast og vantað hafi að bæta við á bakvakt.Vélin fór í loftið klukkan 10 en hún átti upphaflega að fara 07.35.Þetta er þriðja flugferð Icelandair síðan 5. maí sem ýmist er seinkað eða aflýst vegna vöntunar á áhafnarmeðlimum þegar forföll koma upp.Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), segir engin tengsl á milli kjaradeilu FÍA og Icelandair og þess að seinkanir eða aflýsingar hafi orðið síðustu daga. Það eigi einnig við um seinkunina í morgun.Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair, vegna fyrri flugferða sem þurfti að aflýsa, sagði að upp gætu