Pétur hefur alla tíð verið skapandi, teiknaði mikið, æfði dans um árabil og tók þátt í alls kyns skapandi verkefnum á námsárum í Versló. Hann lærði grafíska hönnun við LHÍ þar sem áhugi hans á lágmyndum varð að lokaverkefni. Skiptinám í Hollandi hafði mikil áhrif á hann og hans stefnu, en í dag hefur hann haldið nokkrar einkasýningar þar sem öll verk hafa selst og komið sér upp vinnustofu í Hafnarfirði innan um allt annars konar starfsemi þar í bæ. Verk Péturs eru mörg hver nokkurs konar lágmyndir í ramma, unnar í tré, steypu og plast t.d. og hann nýtir nútímatækni s.s. laserskera og fleira. Hlusta má á viðtal Huldu Geirsdóttur við Pétur í spilaranum hér að ofan þar sem hann fer yfir lífið, listina og lágmyndirnar, áhrifavalda og lífssýn.