Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst meðal umsækjenda um FB

Sjö umsóknir bárust um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti áður en umsagnarfrestur rann út í síðasta mánuði. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir lætur af embætti eftir 17 ára starf. Hún er aðeins þriðji skólameistarinn í hálfrar aldar sögu skólans og verður arftaki hennar því sá fjórði sem gegnir því embætti.Meðal umsækjenda eru Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst. Auk þeirra sækja um þrír kennarar, einn sérfræðingur og leiðtogi farsældar barna.
Fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst meðal umsækjenda um FB

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta