Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla gagnrýnir „niðurrifsumræðu“ um skólamál. Hún segir þurfa betri samræmd námsviðmið, betri námsgögn og að foreldrar taki ábyrgð á námi barna sinna. Allt of margir foreldrar sinni ekki námi barna sinna og taki þau jafnvel úr skóla í lengri tíma.