Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úttekt lokið á framleiðsluaðstöðu Alvotech

Alvotech stefnir að því að senda aftur inn umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum vegna hliðstæðulyfja fyrir lok þessa ársfjórðungs. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk á föstudag úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík.Umsókn fyrirtækisins um leyfi fyrir líftæknilyfið AVT05 var hafnað í nóvember. Þá hafði Matvæla- og lyfjaeftirlitið gert athugasemd við myglu, poll og klístrað gólf í aðstöðunni.Alvotech hyggst bregðast skjótt við athugasemdum sem það fékk í lok nýjustu úttektarinnar og segir þær ekki krefjast veigamikilla breytinga eða viðbragða.Húsnæði Alvotech í Reykjavík.RÚV / Ragnar Visage
Úttekt lokið á framleiðsluaðstöðu Alvotech

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta