Tillaga Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, um að Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslari Þýskalands, verði milligöngumaður í viðræðum um frið í Úkraínu hefur fallið í grýttan jarðveg. Pútín setti tillöguna fram í tengslum við hátíðahöld vegna loka seinni heimsstyrjaldar.Þýskir ráðamenn voru fljótir til og vísuðu hugmyndinni á bug.Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, tók í sama streng og sagði að það væri ekki skynsamlegt af Evrópuþjóðum ef þær leyfðu Rússum að velja samningamann sinn fyrir sig. „Gerhard Schröder hefur verið háttsettur málafylgjumaður fyrir rússnesk ríkisfyrirtæki. Það er augljóst hvers vegna Pútín vill fá hann til verksins þar sem hann situr þá beggja megin borðsins.“Schröder var kanslari Þýskalands í kringum aldamót. Eftir að Schröder lauk stjórnmálaferli