Einn þeirra 17 bandarísku ríkisborgara sem voru fluttir frá skemmtiferðaskipinu Hondius á Tenerife í gær hefur greinst með hantaveiru, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna.Annar bandarískur ríkisborgari er með væg einkenni smits. Hópurinn verður fluttur í sérstaka móttökustöð í Nebraska í Bandaríkjunum þar sem hver og einn fer í gegnum læknisskoðun og fær viðeigandi meðferð og aðstoð.Einn franskur ríkisborgari hefur greinst með jákvætt hantaveirusmit. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að allir fimm frönsku ríkisborgararnir sem voru um borð í Hondiusi hafi verið settir í sóttkví í 72 tíma við komu til Parísar. Að henni lokinni mun fólkið gangast undir læknisskoðun áður en það fær að fara heim til sín í 45 daga heimasóttkví.Sex ástralskir ríkisborgarar fara með flugi til Ástral