Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt á fullu í sauðburði í Grindavík

Sauðburður stendur nú yfir af fullum krafti í Grindavík en þar eru í dag fjórir frístundabændur með fé. Lömbin þykja óvenju skrautleg enda alls konar á litinn.Í fjárhúsinu við Vík eru þau Sigrún Harpa Harðardóttir og Anton Helgi Hermannsson með 22 kindur, sem eru nánast allar bornar, en sauðburður hófst óvenjulega snemma hjá þeim.„Hann byrjaði 26. apríl og það er búið að vera brjálað að gera síðan. Það eru flest allar tvílembur, ætli það séu ekki svona 44 lömb, sem við eigum von á,” segir Sigrún Harpa.Er þetta ekki dásamlegur tími?„Þetta er bara besti tími ársins, mér finnst það. Það er líka gott að vera heima í Grindavík”, segir Sigrún Harpa.En að búa í Grindavík núna, hvernig er það?„Það er bara geggjað að vera hérna. Sveitalyktin er best við Grindavík en ég var lítill sveitakarl en koms
Allt á fullu í sauðburði í Grindavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta