Lögreglubíll.RÚV / Kristinn Gauti GunnarssonTilkynnt var um ungmenni á krossurum að spæna upp gras í Hafnarfirði eða Garðabæ í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ungmennunum var fylgt eftir með dróna að heimili.Lögreglan hafði einnig afskipti af þremur ökumönnum sem voru að keyra bíla sína án ökuréttinda. Einn þeirra hefur aldrei verið með ökuréttindi og er þetta í fjórða sinn sem hann er kærður fyrir sama brot. Þá var hann með barn í bifreiðinni og var barnavernd látin vita.Alls voru 50 mál skráð í dagbók lögreglunnar á tímabilinu frá klukkan 17:00 síðdegis í gær og þar til í morgun klukkan 05:00.