Hjalti Snær Árnason hefði orðið 24 ára 9. maí en hann svipti sig lífi í fyrra. Hjalti var einhverfur og með geðrænan vanda. Við 18 ára aldur féll hann milli kerfa og fékk ekki þá aðstoð sem hann þurfti. Foreldrar hans og aðrir aðstandendur vilja vekja athygli á málefnum ungmenna með geðrænan vanda og því úrræðaleysi sem hefur einkennt málaflokkinn.„Það vantar svo mikið, eins og allir vita, úrræði fyrir ungmenni. Þegar við fréttum að Hjalti okkar væri farinn í sjóinn ákváðum við bara strax: nú gerum við eitthvað úr þessu og látum þetta ekki fara undir teppið,“ segir Gerður Ósk Hjaltadóttir, móðir Hjalta.„Hann er með okkur, algjörlega. Hann plantar þessu geggjaða veðri, það er búið að vera snjór alla vikuna. Ég veit það alveg, hann er búinn að vera með okkur frá fyrsta degi,“ segir hún. ÆT