Donald Trump Bandaríkjaforseti gengur um borð í Air Force One forsetaflugvélina.AP / Matt RourkeStjórnvöld í Kína hafa staðfest opinbera heimsókn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta til landsins í vikunni. Von er á Trump og fylgdarliði hans á miðvikudaginn og stendur heimsóknin fram á föstudag. Búist er við að hann fundi með forseta Kína, Xi Jinping, um Íran og viðskipti. Kínverjar eru ein helsta viðskiptaþjóð Írana með olíu.Upphaflega stóð til að Bandaríkjaforseti kæmi í heimsókn til Kína í apríl en þeirri heimsókn var frestað vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.Þetta er í fyrsta sinn síðan 2017 sem bandarískur forseti fer í opinbera heimsókn til Kína.