Kanadíski herinn hefur stækkað gríðarlega síðustu tvö ár. Nýliðun í her landsins í ár er sú mesta í 30 ár þegar um 7.000 nýliðar gengu í herinn.Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.Kanada hefur í áratugi verið talið dragbítur á heimsvísu í fjármögnun til varnarmála og fyrir aðeins tveimur árum var nýliðun í hernum svo bágborin að fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins varaði við því að herinn væri fastur í niðursveiflu sem færi sífellt versnandi. „51. FYLKIГ Þessa aukningu á mannafla hersins síðustu tvö ár má líklega skýra með skuldbindingu Kanada að verja milljörðum til varnarmála. Árum saman hefur Kanada ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Atlantshafsbandalaginu en nú hefur landslag alþjóðamála breyst.Þjóðernishyggja í landinu hefur einnig fengið byr undir b