Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrrverandi dómsmálaráðherra á flótta

Fyrrverandi dómsmálaráðherra Póllands, Zbigniew Ziobro, sem er eftirlýstur vegna fjölda afbrota í heimalandinu, er flúinn til Bandaríkjanna.Pólska hægri sinnaða sjónvarpsstöðin Republika birti viðtal við Ziobro í gær frá Bandaríkjunum. Ziobro flúði til Bandaríkjanna frá Ungverjalandi þar sem hann fékk pólitískt hæli undir verndarvæng Viktors Orban, fyrrum forsætisráðherra Ungverjalands.Ziobro er eftirlýstur fyrir að hafa misnotað vald sitt, skipulagða glæpastarfsemi og misnotkun fjármuna en hann varði fjármunum sem ætlaðir voru fórnarlömbum glæpa til að kaupa ísraelskt njósnaforrit til að fylgjast með pólitískum andstæðingum. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm í Póllandi.Aðstoðardómsmálaráðherra Póllands, Marcin Romanowski, er einnig grunaður um brot
Fyrrverandi dómsmálaráðherra á flótta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta