Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varnarmálaráðherra segir af sér vegna drónamála

Andris Sprūds, fráfarandi varnarmálaráðherra Lettlands, tilkynnti um afsögn sína á blaðamannafundi í gærkvöld. Hann segir að með afsögn sinni vilji hann koma í veg fyrir að lettneski herinn verði dreginn inn í pólitískar deilur. Lettneska ríkisútvarpið LSM greinir frá.Undanfarið hafa nokkrir drónar hrapað til jarðar í aðskildum atvikum í Lettlandi og herinn var gagnrýndur fyrir að bregðast ekki við nægilega fljótt og skjóta þá niður. Forsætisráðherra Lettlands Evika Siliņa fór fram á afsögn Sprūds. Hún sagði að hann hefði misst traust flokks hennar og þjóðarinnar vegna málsins.Afsögn Sprūds gæti haft áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og Framfaraflokkur Sprūds ætlar að greina frá því í dag hvort flokkurinn ætli að vera áfram í ríkisstjórn eða ekki. Hann hefur verið varnarmálaráðherra síðan 20
Varnarmálaráðherra segir af sér vegna drónamála

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta