Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að svör Írana við friðartillögu Bandaríkjastjórnar séu algerlega óásættanleg. Trump greindi frá þessu í færslu á Truth Social í kvöld án þess að útlista nánar hvað felst í svörum Írana.Íranar svöruðu friðartillögum Bandaríkjastjórnar fyrr í dag. Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, sagði í færslu á X að stjórnvöld myndu ekki láta undan óvinunum og ef samtal eða samningaviðræður eru í myndinni þá þýðir það ekki uppgjöf eða undanhald.Samkvæmt IRIB, ríkisfjölmiðli Írans, var svörum Írana við friðartillögunni miðlað af pakistönskum samningamönnum og sneru að því að ljúka stríðinu á öllum vígstöðvum, sér í lagi í Líbanon, og tryggja öryggi skipasiglinga.Auðgað úran Írana virðist áfram vera ásteytingarsteinn milli Írana og Bandaríkjanna og Ísraela. Forsætisráðhe