Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skipulagsmálin á oddinum í Mosfellsbæ

Mosfellsbær er sjöunda stærsta sveitarfélag landsins. Bærinn hefur vaxið hratt á undanförnum aldarfjórðungi. Þar bjuggu innan við sex þúsund manns um aldamótin 2000, en íbúafjöldi hefur síðan þá meira en tvöfaldast. Því fylgja ýmsir vaxtaverkir.Skipulagsmál eru íbúum Mosfellsbæjar ofarlega í huga fyrir þessar kosningar. Íbúðauppbygging, samgöngur og hvernig farið er með fjármuni sveitarfélagsins er meðal þess sem fólk á förnum vegi sagði ráða atkvæði sínu á kjördag.Fyrirhuguð uppbygging á Blikastaðalandi er umdeild. Þar stendur til að reisa yfir tólf hundruð íbúðir, bæði í sérbýli og fjölbýli, fyrir um þrjú þúsund manns á næstu sjö árum. Til lengri tíma litið er gert ráð fyrir íbúðabyggð þar fyrir um níu þúsund manns.
Skipulagsmálin á oddinum í Mosfellsbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta