Þverfaglegt málþing um tengsl Íslands og Færeyja við eyjarnar undan Skotlandi var haldið í Færeyjum í vikunni. Rýnt var í heimildir úr ólíkum fræðigreinum eins og bókmenntafræði, fornleifafræði og náttúrufræði.„Það var verið að tala um tengsl Færeyinga og menningar úr Færeyjum við eyjarnar undan Skotlandsströndum, því í Færeyjum er eiginlega sama vandamálið og hér hjá okkur. Fólk hefur alltaf haldið að þetta væri norrænt fólk, sem hefði flust þarna í einu lagi á víkingaöld og hafið búskap,“ segir Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun, í viðtali við fréttastofu. Hann flutti erindi á málþinginu.Sífellt fleiri vísbendingar séu um að sú söguskoðun standist ekki.„Genablöndunin er allt önnur. Stór hluti er með gelískum genum, alveg eins og hér hjá okkur en blandan er önnur hjá Fæ