Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vilja sjá Akureyri halda áfram að stækka

Í dag eru sex dagar til sveitarstjórnarkosninga. Rætt var við íbúa Akureyrarbæjar í kvöldfréttum um þau málefni sem brenna á þeim fyrir kosningarnar.Akureyringum hefur fjölgað um þúsund á kjörtímabilinu og margir sem hafa orðið á vegi fréttastofunnar vilja sjá bæinn halda áfram að stækka og ný hverfi rísa hraðar. Það þurfi að spýta í lófana í byggingu íbúðarhúsa og íþróttamannvirkja og fá meira líf í miðbæinn.Akureyringum finnst einnig að betur megi fara í málefnum sem snerta þá dag frá degi, nærumhverfinu, hvernig þeir komast milli staða og þjónustu við börn og eldri borgara.
Vilja sjá Akureyri halda áfram að stækka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta